Upphaflega hljóðaði spurningin svona:Hvað geturðu sagt mér um fléttur? Hver er stofn þeirra, er einhver samkeppni og hvert er kjörbýli þeirra?
Fléttur eru sambýli sveppa og ljóstillífandi lífveru, ýmist blábaktería (e. cyanobacteria) eða grænþörungs. Sveppurinn er oftast ráðandi aðilinn í sambandinu og er nafn fl...
Tengsl tegunda í vistkerfi geta verið afar flókin. Það er ekki endilega víst að ljón (Panthera leo) drepi blettatígra (Acinonyx jubatus) sér til matar, heldur kann að vera að þau séu í og með að draga úr samkeppni um fæðu.
Það er vel þekkt að ljón drepi blettatígra, bæði fullorðin dýr og hvolpa. Á svæðum í Afrí...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svo:Ef kettir missa klær vaxa þær aftur og getur komið sýking?
Já, kattaklær vaxa samfellt allt líf kattarins, líkt og neglur okkar mannanna. Það er þeim nauðsynlegt því annars hefðu ansi margir kettir stuttar og slitnar klær.
Kattaklær vaxa samfellt allt líf kattarins en e...
Með samráði er einfaldlega átt við að menn ræði saman og alla jafna þykir ekki ástæða til að amast við því. Þegar fyrirtæki eiga í samkeppni er þó oftast talið óæskilegt að stjórnendur þeirra ræði saman og ákveði til dæmis hvernig þeir ætla að verðleggja vörur sínar eða skipta með sér mörkuðum.
Skýringin á því ...
Svarið við þessari spurningu er bæði já og nei. Margar ástæður geta legið á bak við þetta atferli kattardýra. Eins og glöggir kattareigendur vita eyðir kötturinn miklum tíma í að snyrta sig. Samkvæmt atferlisrannsóknum er um að ræða allt að helmingi þess tíma sem dýrið er vakandi.
En hver er tilgangurinn með al...
Orðtakið að koma einhverjum fyrir kattarnef merkir ‛gera út af við einhvern/eitthvað, láta einhvern/eitthvað hverfa’. Það þekkist frá því á 19. öld.
Í ritinu Íslenzkt orðtakasafn (I:310) bendir Halldór Halldórsson á að til sé eldra orðtak, að koma einhverjum fyrir Hattar nef, sem sé kunnugt frá 17. öld. ...
Sagt er að rökfærsla sé sönn þegar hvort tveggja á við að hún er gild og að allar forsendur hennar eru sannar.
Rökfærsla er gild þegar niðurstöðu hennar leiðir af forsendunum.
Dæmi:
1. Allir hundar eru spendýr.2. Snati er hundur.
Niðurstaða: Snati er spendýr.
Annað dæmi:1. Allir hundar hafa vængi.2. Sna...
Það geta verið margar ástæður fyrir því að það kastast í kekki milli katta (Cattus domesticus). Sennilega má þó oftast rekja slagsmál þeirra til landamæradeilna en allir kettir, hvort sem þeir eru heimiliskettir eða villt kattadýr, helga sér óðal.
Meðal villtra kattadýra er það nær algild regla að karldýrin he...
Lesendur Vísindavefsins hefur vafalaust rennt í grun að ritstjórnin sé skipuð fólki sem dreymdi einu sinni um að vinna Nóbelsverðlaun fyrir framlag sitt til vísindanna. Það er líka alveg rétt. Hitt er svo einnig augljóst að fyrst þau vinna á Vísindavefnum er lítil von til að þessi draumur rætist. Annar raunhæfari ...
Eins og orðin gefa til kynna þá er einungis einn seljandi að tiltekinni vöru eða þjónustu þegar um einkasölu er að ræða. Keppendur eru hins vegar fáir, en þó fleiri en einn, sé um fákeppni að ræða. Einkasala er þýðing á 'monopoly' en fákeppni er þýðing á 'oligopoly'.
Ýmist er talað um einkasölu eða einokun. Fy...
Skýringin á því að kettir kasta upp hárum liggur í því að þegar þeir þvo sér sleikja þeir feldinn með hrjúfri tungunni og þá berast hár ofan í maga þeirra. Hárin valda ertingu í maganum sem leiðir til þess að þeir skila þeim upp. Hins vegar berst eitthvað af hárum niður meltingarveginn og skilst út með saur.
K...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:Hvaða umhverfisskilyrði og aðlaganir þurfti til þess að hryggdýr gætu hafið landnám? Hvar og hvenær er það talið hafa gerst?Eitt af stærstu skrefum í þróun lífs á jörðunni var landnám hryggdýra. Þetta merka skref tók hópur holdugga (Sarcopterygii) á seinni hluta fornlífsalda...
Upprunalega hljóðaði spurningin svona:
Hvort er rétt, að menn séu með fætur eða lappir? Margir standa fastir á því að einungis skepnur hafi lappir og mannfólkið fætur. Ef tekið er mið af því að svo sé rétt - er þá ekki orðanotkunin vinsæla „að standa í lappirnar“ frekar furðuleg málnotkun?
Samkvæmt Íslenskri...
Ekki er mikið um íslenska hjátrú sem tengist norðurljósum. Þó eru einstaka dæmi um slíkt. Sagt er að mikil hreyfing norðurljósa og litbrigði viti á hvassviðri en liggi þau kyrr sé von á stillum. Einnig telja sumir að þegar norðurljós sjáist seint á vetri sé enn að vænta snjókomu. Rauð norðurljós eru ófriðarboð...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!